Fjöldi fyrirtækja býður nemendum og kennurum ljósritunar- og prentþjónustu. Háskólaprent er fyrirtæki á háskólasvæðinu sem hefur sérhæft sig í að þjónusta skólafólk. Það gefur út greinasöfn og frumsamdar kennslubækur fyrir námskeið og prentar lokaritgerðir fyrir nemendur, auk þess að vinna við ótalinn fjölda smærri verka fyrir nemendur, kennara og stofnanir, t.a.m. bæklinga, ritgerðir, skýrslur, OCR skönnun o.s.frv.

Háskólaprent er staðsett á Fálkagötu 2 á horninu á Fálkagötu og Suðurgötu.

 Sama síða á öðrum árum