HÁMA er veitingasala sem Félagsstofnun stúdenta rekur á Háskólatorgi, í Stakkahlíð, Háskólabíói, Eirbergi, Læknagarði, Odda, Tæknigarði, Þjóðarbókhlöðu, Þjóðminjasafni og Öskju. Matseðlar HÁMU eru birtir vikulega á vef FS. Félagsstofnun rekur einnig lítið bókakaffi í Bóksölu stúdenta. Veitingasalan og kaffistofur eru öllum opnar. Yfirlit yfir Kaffistofur FS og opnunartíma.

Kaffi Gaukur er lítið kaffi- og veitingahús sem opið er virka daga í Veröld - húsi Vigdísar.

Veitingasölur sem nemendur reka eru í VR-II og Haga.

Stúdentakjallarinn

Veitinga- og skemmtistaður stúdenta, Stúdentakjallarann, er staðsettur á neðstu hæð Háskólatorgs. Eldhús staðarins er opið kl. 11:00 til 21:30 alla daga.

 Sama síða á öðrum árum