Annarsmálsfræði, MA, 120 einingar

Aðgangskröfur:

BA-próf með 1. einkunn og a.m.k. 10 eininga lokaverkefni, er skilyrði fyrir aðgangi að meistaranámi á háskólastigi. Námið er fyrst og fremst ætlað nemendum sem hafa lokið grunnnámi á háskólastigi á sviði hugvísinda.

Tilhögun náms:
Fullt nám í tvö ár.
Staðnámsleið
Námskröfur:

Til MA-prófs er krafist 120 eininga. Námið skiptist í 30 einingar í skyldunámskeiðum, 60 einingar í valnámskeiðum og 30 einingar í meistaraprófsritgerð. Nemendur skulu ljúka minnst 60 einingum úr MA námskeiðum innan námsgreinar. Heimilt er að velja námskeið allt að 30 einingum úr skyldum greinum í samráði við greinarformann.

Hæfniviðmið:
Skoða
Aðgangur að frekara námi:
Meistaragráða veitir rétt til að sækja um doktorsnám.
Starfsréttindi (ef við á):
Frekari upplýsingar um námsleiðina:

Námið er í samvinnu tveggja deilda á Hugvísindasviði; Íslensku- og menningardeildar og Mála- og menningardeildar. Erlendis og á Íslandi er stöðugt aukinn áhugi á annarsmálsfræðum, enda skipta þau máli hvað snertir meiri þekkingu á eðli máltileinkunar annars máls og bættar kennslu- og námsaðferðir. Þessi námsleið er svar við brýnni þörf fyrir betri menntun tungumálakennara sem kenna á háskólastigi og þeirra sem kenna fullorðnum tungumál á öðrum vettvangi. Námsleiðinni er einnig ætlað að efla rannsóknir á sviði annarsmálsfræða og tví- og margtyngis.

Námið er ætlað þeim sem hyggjast vinna við rannsóknir á fræðasviðinu og sem undanfari doktorsnáms og einnig þeim sem hyggjast leggja fyrir sig kennslu í öðru eða erlendu máli fyrir fullorðna og loks þeim sem vilja dýpka og víkka þekkingu sína á kennslu tungumála fyrir fullorðna.

Nemendur fá yfirgripsmikla fræðslu um stöðu þekkingar í annarsmálsfræðum og kennslufræðum annars máls. Þeir fá þjálfun í beitingu rannsóknaraðferða og æfingu í sjálfstæðum vinnubrögðum.

Markhópurinn er nemendur sem hafa lokið BA-námi í Íslensku- og menningardeild eða Mála- og menningardeild eða samsvarandi námi, starfandi tungumálakennarar og aðrir sem hafa áhuga á tungumálakennslu fullorðinna.